Nú líður að bolludeginum og í tilefni þess ákvað ég að gera nokkrar bollur fyrir okkur skötuhjúin og þá sem áttu leið til okkar. Ég hef eina uppskrift sem hefur ekki klikkað hingað til og er mjög einföld. Bollurnar er svo hægt að fylla með hverju sem er, t.d. sultu og rjóma, karamellubúðing og rjóma ofl. ofl. Allt eftir hvað ímyndunaraflið leyfir
. Svo er auðvitað hægt að setja ekta* súkkulaði eins og það er stundum kallað, súkkulaðiglassúr, litaðan glassúr eða sigtaðan flórsykur yfir.
Svona koma bollan mín út, klassískt með bræddu súkkulaði, jarðaberjasultu og rjóma.
Takið saman hráefnin.


Hitið saman vatn og smjörlíki.

Þeytið eggin, gott að færa þau yfir í aðra skál eða könnu svo þið getið notað velina aftur seinna í ferlinu.

Blandið hveitinu við vatnið og smjörlíkið og leyfið að kólna.


Hrærið eggjunum saman við deigið í hrærivél, lítið magn í einu en passið að ofþeyta ekki.

Setjið í sprautupoka eða notið skeiðar til að setja yfir á bökunarplötu með smjörpappír.

Hér eru þær komnar á plötuna, smá klúður með sprautupokana en ég gleymdi mér, ætlaði ekki að hafa toppa.

Hér eru þær komnar úr ofninum.
Dífið bollunum í brætt súkkulaði…

… eða glassúr

Skemmtilegt að hafa mismunandi bollur, súkkulaði, glassúr, rjómi, búðingur og lengi mætti telja.
Uppskrift af vatnsdeigsbollum, gerir um 12 stk af miðlungsstórum bollum (auðvelt að tvöfalda hana)
- 80 gr smjörlíki
- 200 ml vatn
- 2 stk egg
- 100 gr hveiti
- smávegis salt
Leiðbeiningar:
- Hitið ofninn í 200°C
- Hitið saman vatn og smjörlíki þangað til smjörlíkið er alveg bráðið og takið af hellunni.
- Blandið hveitinu saman við vatnið og smjörlíkið með sleif, hrærið saman þangað til degið losnar af sleifinni og stráið salti yfir. Leyfið að kólna aðeins.
- Þeytið eggin og blandið þeim svo saman við deigið í hrærivél eða með handþeytara. Setjið smá í einu en passið að hræra ekki of mikið. Passið að deigið má ekki vera of lint.
- Setjið deigið á plötu með smjörpappír, annaðhvort með tveim skeiðum eða sprautupoka. Munið að hafa nóg bil á milli þar sem þær stækka nokkuð.
- Bakið í 20-30 mínútur í miðjum ofni. Passið að opna EKKI ofninn fyrstu 15 mínúturnar annars geta bollurnar fallið. Það er þó gott að taka eina út þegar tíminn er kominn til að athuga hvort þær séu ekki örugglega full bakaðar.*
* Ég bakaði tvöfalda uppskrift og setti inn tvær plötur með viftuna á og þurfti alveg 30 mínútur. Það verður hörð skel fyrst en svo mýkist hún upp.
Glassúr:
- Flórsykur
- Vatn
- Matarlitur eftir smekk
Blandið saman smá vatni við flórsykur og hrærið saman með gaffli eða písk. Magn af hvorutveggja fer alveg eftir smekk. Þó er betra að hafa glassúrinn ekki of þykkann/stífan svo þið getið auðveldlega díft bollunum í.
Hugmyndir að fyllingum:
- Sulta og þeyttur rjómi
- Royal búðingur (karamellu, vanillu, súkkulaði), blandið duftinu saman við helming af magni vökvans sem tilgreint er á pakkningunni. Leyfið að stífna og setjið svo inn í bollurnar. Gott er að hafa smá þeyttan rjóma með.
- Þeytið saman stífan búðing og rjóma.
- Svo er hægt að og þeyta rjóma ásamt jarðaberjum úr dós eða aðrir ávextir.
- Leyfa hugmyndafluginu að ráða








