Krem og fyllingar
Smjörkrem (hvítt):
- 75-100 gr smjör eða smjörlíki
- 2-3 dl flórsykur
- (1 msk vatn)
- Bragðefni eftir smekk, t.d. vanillu, jarðaberja, piparmyntu o.s.frv.
Súkkulaðismjörkrem:
- Sama uppskrift og hér að ofan en bætið við 2 msk Kakó og ein eggjarauða
- 1 eggjahvíta
- 4 msk ferskur appelsínusafi*
- 175 gr flórsykur
- Annað skraut t.d. silfurkúlur
Settu flórsykurinn, eggjahvítuna og safann í hitaþolna skál. Settu hana svo yfir pott með sjóðandi vatni og þeyttu saman með rafmagnsþeytara (yfir sjóðandi vatninu) í 7 mínútur. Taktu svo skálina af og þeyttu í aðrar 2 mínuru. Því næst geturu sett kremið á kökunar með kökuspaða eða öðru áhaldi og reyndu að mynda einskonar snúning. Hægt að skreyta að vild ![]()
Þetta krem er áætlað fyrir 18 kökur og því verður eflaust einhver afgangur ef gerðar eru 12.
_______________________________________________________
Rjómaostakrem (á Gulrótarköku)
- 1/2 bolli (115 gr) mjúkt smjör
- 8 únsur (225 gr) rjómaostur
- 4 bollar (480 gr) flórsykur
- 1 tsk vanilludropar
- 1 bolli (110 gr) saxaðar pekanhnétur***
Leiðbeiningar:
Setjið öll hráefnin í skál og hrærið saman (ég notaði k-ið á KitchenAid vélinni minni. Hrærið þangað til kremið er orðið létt og kremað. Smyrjið svo kreminu á kökuna með kökuspaða eða því sem hentar
______________________________________________________________
Karamellusósa, 1/2 uppskrift:
- 100 gr púðursykur
- 50 gr síróp
- 70 gr smjör
- 3/4 dl rjómi
Súkkulaðimús (heil uppskrift)
- 4 eggjarauður
- 1/4 bolli sykur
- 2 bollar suðusúkkulaði
- 1/4 bolli smjörlíki (eða smjör)
- 1 og 1/4 bolli rjómi
- 1 tsk vanilludropar
Leiðbeiningar
- Þeytið eggjarauður og sykur vel saman svo úr verði létt og ljóst krem og leggið til hliðar.
- Bræðið smjörlíki og súkkulaði saman í hitaþolinni skál yfir vatnsbaði eða örbylgjuofni.
- Hellið eggjahrærunni og 1/4 bolla af rjómanum út í, blandið vel saman og leyfið að kólna við stofuhita.
- Þeytið restina af rjómanum og vanilludropunum saman blandið svo súkkulaðiblöndunni saman við. Þá eruð þið komin með þessa dýrindis mús.



