Kökur og kökubotnar
Svambotnar:
- 4 stk egg
- 2 dl sykur
- 1 dl hveiti
- 1 dl kartöflumjöl
- 1/2 – 1 tsk lyftiduft
- bragðefni eftir smekk (t.d. vanilludropar, sítrónubörkur osfrv.)
Leiðbeiningar:
- Hrærið egg þangað til létt og ljós, bætið svo við sykrunum einum dl í einu. Setjið bragðefni út í ef þess er óskað
- Sigtið þurrefnin og blandið varlega saman við
- Bakið við 200°C í ca 20-30 mín eða þangað til pinni/tannstöngull kemur hreinn út
___________________________________________________________________
Red velvet:
- 2 bollar hveiti
- 1/2 bolli smjörlíki (eða smjör)
- 1/2 bolli sykur
- 2 stór egg, við stofuhita
- 1,5 msk rauður matarlitur
- 2 msk kakó (cadbury´s)
- 1 tsk vanilludropar
- 1 tsk salt
- 1 bolli súrmjólk
- 1 tsk eplaedik
- 1 tsk matarsódi (ekki lyftiduft!)

Leiðbeiningar:
- Ofninn hitaður í 180°C og smurði ég eitt 22cm hringform (smjörpappír í botninn en smjör og hveiti í hliðarnar).
- Sigta hveitið í skál og leggja til hliðar. Hræra saman sykur og smjör þangað til létt og ljóst (ca 5mín). Bæta eggjunum við, eitt í einu.
- Í litla skál skal hræra vel saman matarlitnum, kakóinu og vanilludropunum.
- Settu saltið í súrmjólkina og bættu henni svo við deigið, til skiptis við hveitið (ca 1/3 í einu) en ekki taka of langan tíma eða hræra of mikið.
- Blandaðu edikinu og matarsódanum saman í mjög lítilli skál og bættu við degið.
- Settu deigið í mótið og bakaðu í ca 30-40 mín, eða þangað til kökupinninn kemur hreinn út. Ég notaði ekki blástur.
- Leyfðu kökunni að kólna. Ef þú ætlar að gera svona köku, þá er best að leyfa henni bara að kólna í ca 10-15mín, setja hana í poka og beint í frysti í ca 3-5klst svo sé auðveldara að skera og meðhöndla.
_______________________________________________________
Basic white cake
- 2 stór egg
- 1 og 3/4 bolli hveiti (sigtað)
- 2 tsk lyftiduft
- 1/4 tsk salt
- 1/2 bolli smjör/smjörlíki, lint
- 1 bolli sykur
- 1 tsk vanilludropar
- 1/2 tsk möndludropar*
- 1/2 bolli mjólk
- 1/8 tsk cream of tartar**
*Þessu má sleppa þar sem það eru ekki allir fyrir mikið möndlubragð. Ég prufaði það og held að ég myndi eingöngu nota 1/4 tsk.
** Þetta fæst í flestum matvöruverslunum (a.m.k. Nóatúni og Hagkaup) og er yfirleitt hjá kryddunum frekar en bökunardeildinni.

Leiðbeiningar:
- Skiptu eggjunum, rauður í eina skál og hvítur í aðra og leyfðu þeim að standa og ná stofuhita.
- Hitaðu ofninn í 180°C og smyrðu formin eins og að ofan.
- Settu sigtað hveitið, lyftiduftið og salt í skál og leggðu til hliðar.
- Hrærðu smjörið í ca 1 mín og bættu við 3/4 bolla af sykrinum (munda eftir að geyma afganginn) og hrærðu í ca 2 mín til viðbótar. Bættu svo eggjarauðunum við, einni í einu og að lokum vanillu-og möndludropunum.
- Bættu hveitinu og mjólkinni við deigið til skiptis, ca 1/3 af hvoru í hvert sinn. Þetta á að taka minna en 2 mínútur svo degið ofhrærist ekki.
- Næst skaltu þeyta eggjahvíturnar eins og þú værir að þeyta maregns, þegar þær eru orðnar vel froðukenndar skaltu bæta við cream of tartar og þegar toppar eru farnir að myndast skaltu bæta við sykrinum þangað til orðið nokkuð stíft eins og maregns. Gæti tekið um 3 mín á miðlungshraða.
- Að lokum skaltu blanda eggjahvítublöndunni varlega saman við degið með sleikju þangað til vel blandað saman. Skelltu deginu í formið og bakaðu í ca 20-25 mín eða þangað til kökupinni kemur hreinn út.
- Þegar kakan hefur kólnað í ca 10-15 mín er best að skella henni í frost eins og gert var með red velvet kökuna.
___________________________________________________________
Gulrótarkaka
Uppskrift af gulrótarköku (ca 20 manna)*
- 4 egg
- 1 1/4 bolli (300 ml) olía
- 2 bollar (400gr) sykur
- 2 tsk vanilludropar
- 2 bollar (250 gr) hveiti
- 2 tsk matarsódi
- 2 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
- 2 tsk kanill
- 3 bollar (330 gr) rifnar gulrætur
- 1 bolli (110 gr) saxaðar pekanhnétur**
Kremið:
- 1/2 bolli (115 gr) mjúkt smjör
- 8 únsur (225 gr) rjómaostur
- 4 bollar (480 gr) flórsykur
- 1 tsk vanilludropar
- 1 bolli (110 gr) saxaðar pekanhnétur***
*Ég gerði tvær uppskriftir eina þar sem ég sleppti hnétunum og í hina setti ég eingöngu hálfan poka (50 gr) þar sem mér fannst það alveg nóg en fer auðvitað eftir smekk.
** Ég setti inn íslenskar mælieiningar þar sem síðan gefur upp hvorutveggja. Þar sem ég er þó svo heppin að eiga mál sem tekur bolla eða “cups” nota ég það þegar ég get. Hér er slóðin á uppskriftina sjálfa.
***Sleppti því að setja hnétur út í kremið.
***Sleppti því að setja hnétur út í kremið.
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 175°C og smyrjið ferkantað mót (22x32cm) ég set bara smjörpappír svo ég geti tekið auðveldlega úr og sett á disk.
- Þeytið egg, olíu, sykur og vanilludropa saman með þeytara. Blandið svo þurrefnunum út í og þeytið þangað til blandað saman. Hrærið út í gulrótum og pekanhnétum með sleif og hellið í mótið.
- Bakið í ca 40-50 mínútur eða þangað til að pinni kemur hreinn út eftir að stinga í miðjuna. Leyfið að kólna áður en kremið er sett á.
- Kremið: Setjið öll hráefnin í skál og hrærið saman (ég notaði k-ið á KitchenAid vélinni minni. Hrærið þangað til kremið er orðið létt og kremað. Smyrjið svo kreminu á kökuna með kökuspaða eða því sem hentar
_________________________________________________________________________
Uppskrift að Regnbogaköku, einföld:
- 170 gr smjör / smjörlíki
- 170 gr sykur
- 3 egg
- 1 tsk vanilludropar (ég notaði um 2 tsk)
- 170 gr hveiti
- 4 tsk lyftiduft
- 3 msk mjólk
- Matarlitiðr (4-6 gerðir)
Leiðbeiningar:
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið hringform, ca 22 cm.
- Byrjið á að þeyta smjör og sykur vel saman þannig að verði létt og ljóst.
- Næst skal bæta við eggjunum, einu í einu og vanilludropunum.
- Því næst fara þurrefnin út í og að lokum mjólkin. Ef ykkur finnst deigið alltof þykkt er í lagi að setja aðeins meiri mjólk.
- Skiptið deiginu í fjóra til sex hluta (eftir hversu margir litirnir verða). Setjið svo litina í formið.
- Bakist í ca 30-40 mínútur eða þangað til kakan er fullbökuð.
__________________________________________________________________
Hjónabandssæla:
- 240 gr smjörlíki
- 280 gr hveiti
- 200 gr sykur
- 150 gr haframjöl
- 1 egg
- 2 tsk matarsódi
- Sulta eftir smekk (ca 1/3 – 1/2 krukka)
Leiðbeiningar:
- Hita ofninn í 180°C
- Blanda öllum þurrefnunum saman í skál.
- Skera niður smjörlíkið og blanda út í ásamt egginu.
- Deigið verður svolítið líkt mylsnu, ég setti klessuna á borðið, þjappaði henni betur saman og skellti í kæli í poka áður en ég setti deigið í formið.
- Eftir að botninn var komið setti ég um um 1/3 af sultukrukku (magn fer eftir smekk).
- Að lokum strimlarnir skornir og lagði yfir.
- Kakan bökuð í 30-40 mínútur.
_____________________________________________________________________
Maregnsterta, tveir botnar
- 3 eggjahvítur
- 150 gr púðursykur
- 80 gr sykur
Leiðbeiningar:
- Hitið ofninn í 150°C
- Þeytið eggjahvítur þangað til stíf froða hefur myndast og hægt að hvolfa skálinni án þess að renni úr.
- Bætið sykrinum rólega við og þeytið vel þangað til blandan breytir ekki um lögun þegar þeytari er tekinn úr.
- Smyrjið í tvo botna á einni eða tvær plötur (eftir því hvort ofninn geti bakað eina eða tvær plötur í einu) einnig er hægt að setja í sprautupoka með stjörnustút og gera toppa eins og ég gerði
- Bakið í miðjum ofni í 40 mínútur
Fyllng
- 2,5 dl rjómi
- 2-3 msk sykur
- 50-100 gr saxað suðusúkkulaði
- 2,5 dl mjólk
- 1 pak royal karamellubúðingur
Leiðbeiningar:
- Þeytið búðinginn með 2,5 dl af mjólk og leyfið að stífna í ísskápnum í smá stund.
- Þeytið rjómann ásamt sykrinum þangað til vel þeyttur. Bætið svo söxuðu súkkulaði varlega við.
- Smyrjið búðningnum á neðri botninn og svo rjómanum og leggið svo efri botninn á.
_________________________________________________________________
Brún rúlluterta, ein stór eða tvær minni
- 3 egg
- 1 og 1/5 dl sykur
- 3 msk hveiti
- 4 msk kartöflumjöl (1/2 dl)
- 1 tsk lyftiduft / matarsódi
- 2 msk kakó
- 1 tsk vanillusykur
Leiðbeiningar:
- Hitið ofninn í 200°C
- Þeytið eggin þangað til þau eru orðin að létt og froðukennd bætið svo sykrinum varlega saman við.
- Sigtið þurrefnin og blandið þeim rólega við eggja&sykur hræruna.
- Hellið í ofnskúffu með smjörpappír og dreifið í þunnt lag, passið að miðjan verði ekki of þykkt og kantarnir of þunnir.
- Bakið neðarlega í ofninum í 5-10 mínútur.
- Þegar kakan kemur úr ofninum hvolfið henni yfir viskastykka sem þið eruð búin að strá sykri yfir (óþarfi að spara sykurinn)
Fylling
Fyllingin er skemmtilega einföld en hún er vel þeytt smjörkrem, uppskriftin erkomin inn hér en birti hana aftur.
- 100 gr smjörlíki
- 3 dl flórsykur
- 1-2 tsk vanilludropar
Þeytið smjörlíki, flórsykur og vanilludropa vel saman. Þeytið þangað til kremið er orðið hvítt en það getur tekið nokkrar mínútur. Ef kremið er of þykkt, þá bætið við 1-3 msk af vatni og það verður mýkra og auðveldara að smyrja því á kökuna.
Þegar kremið er komið á rúllið þið kökunni upp og notið viskastykkið til að hjálpa ykkur. Voila, góð og einföld kaka tilbúin á ca 30 mínútum.



