Muffins
Vanillu muffins (12 stk)
- 150 gr smjör/smjörlíki
- 150 gr sykur
- 170 gr hveiti*
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/2 tsk lyftiduft
- 1/4 tsk salt
- 3 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 300 gr jarðarber
- 150 ml rjómi
- 2 tsk sykur
- 1/2 tsk vanilludropar
- 4 msk rifsberjahlaup
- 1 msk vatn
Þeyttu rjómann ásamt sykri og vanilludropum þangað til það myndast lausir toppar. Fylltu holurnar vel og þrýstu aðeins niður með teskeið. Raðaðu jarðarberjunum á.
Hitaðu rifsberjahlaupið með vatninu í potti og penslaðu því yfir þegar það er bráðið. Best er að geyma kökurnar í kæli áður en þær eru bornar fram.
__________________________________________________________
Sítrónu og lime (12 stk)
- 1 sítróna
- 2 lime
- 150 gr smjör eða smjörlíki (mjúkt)
- 200 gr sykur
- 3 egg
- 150 gr hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/4 tsk salt
- 50 gr möndlur*
Leiðbeiningar
- Kreistið safann úr sítrónunni og lime
- Setjið öll hráefnin í skál og hrærið í um 1-2 mínútur
- Setjið í formin og bakið í um 20 mínútur við 180°C
Appelsínu og döðlu (18 stk)
- 150 gr smjör /smjörlýki (mjúkt)
- 150 gr púðursykur
- 200 gr hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 3/4 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
- 150 gr döðlur
- rifinn börkur af einni appelsínu
Leiðbeiningar
- Takið frá 6 döðlur og skerið í grófa bita.
- Setjið öll hráefni fyrir utan döðlur í skál og hrærið í 1-2 mínútur þangað til létt og kremað.
- Setjið fínt saxaðar döðlur út í (fyrir utan þessar sex), hrærið með kökuspaða eða sleif og setjið út í formin (ath 18 stk) setjið svo grófu döðlubitana ofan á áður en þær eru settar í ofninn.
- Bakið í ca 25 mínútur við 180°C
Kirsuberjamuffins:
- 125 gr smjörlíki
- 125 gr púðursykur
- 2 egg
- 125 hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/4 tsk salt
- 2-3 msk kakó (t.d. Cadbury’s)
- 1 dolla af kirsuberjajógúrti frá Pascual
Aðferð:
- Þeytið smjörlíkið aðeins (með K-i) ef það er beint úr ísskápnum eins og það er oft hjá mér…
- Blandið sykrinum saman við svo úr verði kremuð blanda og bætið að lokum eggjunum.
- Blandið þurrefnunum saman við og strax á eftir jógúrtinu.
- Þeytið í ca 1-2 mín eða þangað til allt er vel blandað, setjið svo í form og bakið við 180°C í ca 25 mín. Ég notaði ekki blástur, gæti tekið styttri tíma þannig.
Bananamuffins (uppskrift af Kornax.is):
- 100 g smjörlíki
- 150 g sykur
- 2 egg
- 170 g Kornax hveiti
- 2 tsk lyftiduft
- örlítið salt
- 3 stk bananar
Leiðbeiningar:
- Hitið ofninn í 180°C
- Stappið banana vel og leggið til hliðar.
- Þeytið smjörlíki og egg vel saman þangað til létt og ljóst.
- Bætið eggjunum út í, einu í einu og hrærið þangað til vel kremað. Munið að skafa meðfram hliðum ef þörf krefur.
- Setjið þurrefnin út í á lægsta hraða og að lokum bananastöppuna. Munið að hræra ekki of lengi svo deigið verði ekki seigt. Bakið í miðjum ofni í ca 20 mínútur.
Stafamuffins:
- 125 gr smjörlíki (mjúkt)
- 125 gr sykur
- 2 egg
- 145 gr hveiti
- 1/4 tsk matarsódi
- 1 og 1/4 tsk lyftiduft
- hnífsoddur salt
- 1 tsk vanilludropar
- 50 gr hvítir súkkulaðidropar
Skreyting:
- 50 gr hvítir súkkulaðidropar
- 200 gr af fondant (sykurmassa)
Skvízukökur, 12 stk
- 150 gr smjörlíki, mjúkt
- 150 gr sykur
- 170 gr hveiti*
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/2 tsk lyftiduft
- 1/4 tsk salt
- 3-4 msk Royal Karamellubúðingsduft
- 2 msk mjólk
- 3 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 100gr (1pk) Pipp Karamellu frá Nóa Síríus
Leiðbeiningar:
Setjið öll hráefnin í skál og hrærið þangað til allt er blandað saman, ca 1-2 mínútur í hrærivél. Setjið smávegis af deigi í 12 muffins form, setjið einn bita af Pipp bita í hvert form og setjið svo afganginn af deginu yfir í hvert form. Bakið í miðjum ofni í ca 25 mínútur við 180°C.
Krem og skraut
- 2 dl rjómi
- 1 msk vanillusykur eða 1-2 msk Royal Vanillubúðingsduft (gerir kremið þéttara og stendur lengur á borði)
- 1 askja fersk jarðarber,
- 50-75 gr Nóa Síríus suðusúkkulaði
Byrjið á að bræða súkkulaðið og fletjið það út í þunnt lag á smjörpappír og leyfið því að kólna. Saxið jarðarberin í smá bita. Þeytið svo rjómann og blandið vanillusykrinum/búðingsduftinu saman við. Sprautið ofan á kökurnar og skreytið með ferskum skornum jarðarberjum og brotnum súkkulaðiflekum.



