Um daginn skrifaði ég heillanga færslu um sykurmassa og gumpaste. Einnig lét ég fylgja með uppskrift og leiðbeiningar. Hinsvegar átti ég engar myndir til að gefa ykkur betri hugmynd um ferlið en nú hef ég bætt úr því
Hér kemur því sykurmassagerð í máli og MYNDUM!
Leiðbeiningar:
Takið til hráefni og tól sem þið þurfið.

Byrjið á að setja sykurpúðana í skál (smurða palmínfeiti fyrir þá sem það kjósa) ásamt vatni. Munið að setja frekar minna en meira af vatni til að byrja með því að teygjanleikinn er í sykurpúðunum og því meira vatn sem þið notið því meiri flórsykur fer á móti sykurpúðum og teygjanleikinn minnkar.

Hitið í 30 sekúndur og hrærið í með gaffli.

Þetta ferli tekur um 2,5 mínútu (mismunandi eftir örbylgjuofnum).

Þegar sykurpúðarnir hafa bráðnað alveg og minna á mjúka maregnsblöndu er óhætt að setja matarlitinn út í ef sykurmassinn á ekki að vera hvítur.

Hér setjið þið matarlitinn út í ef þið viljið lita allann massann og hrærið vel í með gafflinum.

Hér var notaður Holiday Red sem gerir fallega bleikann þegar notað lítið magn.

Aðferð a) Setjið ca helminginn af flórsykrinum í hrærivélaskálina (smurða með palmínfeiti fyrir þá sem það kjósa), hellið massanum út í og nánast öllum flórsykrinum yfir og leyfið vélinni að vinna degið með hnoðaranum eins og þið væruð að hræra þykkt brauðdeig. Þetta ferli tekur stuttan tíma (ca 2-3 mín) og passið að verði ekki of mikið álag á hrærivélina. Mér skylst að einhverjir hafi brætt úr vélunum sínum og því getur handaðferðin hentað betur.
Aðferð b) Sigtið hluta af flórsykrinum yfir skálina með bræddu sykurpúðunum og hrærið í með gafflinum.

Gerið þetta þangað til ykkur finnst þetta of stíft með gaffli.

Skellið deiginu á borðið og hnoðið þangað til massinn er ekki lengur of klístraður og ekki of linur.

Oft getur verið gott að hafa sköfu við hendina ef of klístrað, auðveldar við að ná massanum af borðinu.

Þegari massinn er orðinn nógu vel hnoðaður verður hann eins og þéttur og góður leir ![]()

Þið getið haft massann í einum eða tveim bútum áður en þið setjið hann í poka og í kæli. Mér finnst best að setja palmínfeiti yfir hann áður en ég set plastfilmu yfir því þá festist hann ekki við hana en það má alveg sleppa henni. Mér finnst best að kæla massann aðeins áður en ég vinn með hann og ekki verra að leyfa honum að standa yfir nótt en þá þarf stundum að hita hann upp í örbylgjunni áður en unnið er með hann.







Ég myndi vilja sjá leiðbeiningar að súkkulaðifondant líka
Takk fyrir ábendinguna Karitas, ég skal græja það fljótlega
Flottar leiðbeiningar, svona ef manni langar að prófa einhverntímann :0)
Aaaah… auðvitað setur maður matarlitinn útí á þessu stigi…
Tóta, já það getur verið gott að setja litinn út í áður en hnoðað ef þarf að lita mikið af fondant, þá er líka hægt að minnka líkurnar á að hann þorni. En ef lítið magn, þá finnst mér betra að lita eftirá