Sumarið hefur heldur betur leikið við okkur Íslendinga og verð ég að játa að þess vegna hef ég lítið viljað vera inni með eldavélinni. Þar af leiðandi hefur orðið lítið um hinar ýmsu kræsingar úr eldhúsinu í sumar. Nú fer hinsvegar haustið að nálgast og ýmis verkefni framundan hjá mér.
Eitt af þeim er að reyna framkalla ostaköku sem ég fékk mér á The CheeseCake Factory í San Francisco í sumar. Kakan sem um ræðir var “White Chocolate Raspberry Truffle“. Hún var alveg svakalega góð og læt hér fylgja með eina mynd af sneiðinni sem ég fékk. Svo er ég að fara gera mjög fallega þriggja hæða brúðartertu og ýmislegt annað sem mig langar að tilraunast með.
Það hafa hinsvegar margir aðrir íslenskir sem og erlendir bloggarar verið duglegir að deila með okkur og þar á meðal er Nanna sem heldur úti síðunni Eldað í Vesturheimi og Eva Laufey sem heldur úti EvaLaufeyKjaran.com. Svo má ekki gleyma Bakerella og i am baker. Auðvitað gæti ég talið upp miklu miklu fleiri en þetta eru þau sem koma upp í huga minn svona í kvöldsárið.
Ég var með lista á síðunni yfir þau blogg sem ég hef hvað mest gaman af að renna gegnum en hann er í uppfærslu hjá mér og kemur aftur inn á síðuna innan skamms.
Hlakka til að deila með ykkur nýju efni á komandi vikum.






