Sörur – uppskrift og aðferð

Ég held að Sörur séu eitt vinsælasta heimagerða konfektið yfir hátíðarnar hér á landi. Ég gerði eina heiðarlega tilraun til sörugerðar fyrir fáeinum árum en sú tilraun endaði ansi illa og fór svo að ég reyndi ekki einusinni að setja kremið á kökurnar. Í ár var sagan hinsvegar önnur, eldri systir mín vildi endilega fá að gera Sörur um jólin þannig að í miðjum piparkökubakstri með frænkum mínum tókum við okkur til og skelltum i nokkrar Sörur. Þær eru í raun afar einfaldar svo lengi sem þið hafið nóg pláss í kælinum eða frystinum og hafið góða hrærivél ;) (og tíma) þar sem ég tók einungis lítinn skammt ákvað ég að gera minn eigin skammt sem endaði í um 240 stykkjum af fullkláruðum Sörum (sem var deilt með vinum og ættingjum). Þar sem mér fannst þetta svo skemmtilegt myndaði ég allt ferlið og langar að deila því með ykkur.

Sörur

Uppskriftin er fengin hjá Nönnu Rögnvalds (og birt með leyfi) en hana má einnig nálgast hjá Snöru sem hefur að geyma nokkrar vefbækur, þar á meðal Matarást og Uppskriftir Nönnu. (Sjá uppskrift og aðferð neðst)

Ef tíminn til að gera Sörur er knappur og þið viljið lágmarka biðtímann þá mæli ég með að þið byrjið á að gera kremið áður en lengra er haldið. Það þarf að byrja á að sjóða vatn og sykur saman, ef þið eigið sykurhitamæli þá á blandan að fara upp í 116°C en annars gæti þetta tekið um 7-10 mínútur, takið af áður en lögurinn fer að breyta um lit (gulna).Sörur - Kökudagbókin

Þeytið eggjarauðurnar vel meðan að lögurinn sýður eða þar til þær eru orðnar kremaðar og ljósgular að lit. Þegar sykurlögurinn er tilbúinn hellið honum varlega saman við eggjarauðurnar og þeytið um leið (því best að hafa hrærivél). Best er að hella milli þeytara og skálarbarms svo sykurlögurinn slettist ekki um alla skálina. Því næst blandið þið linu smjörinu varlega saman við.

Sörur - Kökudagbókin

Þeytið rólega til að byrja með, blandið kakóinu við og þeytið svo vel þangað til kremið er orðið örlítið stífara og nokkuð loftkennt.
Sörur - Kökudagbókin
Kremið ætti að vera flauels mjúkt en gott er að geyma það aðeins í kæli svo það sé auðveldara að setja það á kökurnar og ná kúptu yfirborði. Ef kremið er mjög mjúkt eða nánast fljótandi, ekki hafa áhyggjur, leyfið því bara að kólna lengur. Það getur auðveldlega gerst, t.d. ef þið notið smjör en ekki ósaltað smjör því er gott að gera kremið fyrst svo það hafi tíma til að stífna.
Meðan kremið bíður í ísskápnum getið þið byrjað á kökunum sjálfum. Þetta er mjög svipað og maregns nema að notaður er flórsykur í stað venjulegs sykur og auðvitað nokkuð magn af möndlum ;)
Byrjið á að stífþeyta eggjahvíturnar, galdurinn við að vita hvort þær séu nógu þeyttar er að hvolfa skálinni, ef þær haldast í skálinni eru þær tilbúnar. Ef þær byrja að renna þurfið þið að þeyta þær meir. Einnig er gott að hafa þær við stofuhita þegar þær eru þeyttar en ekki beint úr ísskápnum.
Sigtið svo flórsykurinn í skálina, blandið varlega saman með sleif og hellið svo möndlunum útí og klárið að blanda öllu saman en þó varlega.
Sörur - Kökudagbókin
Notið svo teskeið til að setja blönduna í litlum skömmtum á plötu með bökunarpappír.
Sörur - Kökudagbókin
Munið að hafa ágætt bil á milli því þær stækka nokkuð í bakstrinum. Bakið þær við 180°C í ca 10-12 mínútur. Ég var með blástur á mínum ofni.
Mér finnst best að setja kremið á með matskeið en kremið er sett á botninn á kökunum þannig að þær verði kúptar bæði að ofan og neðan. Þess vegna finnst mér gott að nota matskeið því það auðveldar vinnuna :)
Þegar búið er að setja kremið þarf að setja þær aftur í kæli/frysti svo þær verði stífar og góðar áður en þær eru hjúpaðar með súkkulaði.
Sörur - Kökudagbókin
Kökurnar eru svo best geymdar í frosti eða mjög köldum ísskáp og aðeins skal taka þær fram rétt áður en þær eru bornar fram svo botninn mýkist ekki of mikið. Ekki er verra að geta geymt þær í fallegri konfektöskju og bera þær fram í einni slíkri ef tækifæri gefst. Ég hvet alla sem ekki hafa prufað að gera sörur að prufa þessa uppskrift því hún er afar einföld og létt í vinnslu þó svo það sé ávallt tímafrekt að gera Sörur… þær eru þó sannarlega þess virði!
Hér kemur svo uppskriftin og leiðbeiningar í stuttu máli.

Söruuppskrift:

Kökurnar:4 stk eggjahvítur
225 gr flórsykur
250 gr möndlur, hakkaðar

Kremið:

4 stk eggjarauður
125 gr sykur
100 ml vatn
250 gr smjör, ósaltað og mjúkt
2 msk kakó

Hjúpur
300 gr suðusúkkulaði eða 150 gr suðusúkkulaði og 150 gr hjúpsúkkulaði*

* Upprunalega uppskriftin segir 200 gr af suðusúkkulaði en mér fannst ég þurfa 300 gr og mæla sérfræðingar hjá Nóa Síríus með að blanda hjúpsúkkulaði og suðusúkkulaði ;)

Þessi uppskrift gerir um 50-60 sörur, fer svolítið eftir hversu stórar eða litlar þær eru. Mínar urðu um 2-3 munnbitar að stærð.

Aðferð:

  1. Ofninn hitaður í 180 gráður.
  2. Eggjahvíturnar stífþeyttar. Flórsykurinn sigtaður yfir og hrært saman við með sleikju ásamt möndlunum.
  3. Sett á plötu með teskeið og bakað í 10-12 mínútur en síðan eru kökurnar látnar kólna á grind í ca 10 mín og síðan settar í kæli.
  4. Sykur og vatn soðið saman upp að 116 gráðu hita (lögurinn farinn að þykkna ögn en ekki breyta lit). Á meðan eru eggjarauðurnar þeyttar mjög vel.
  5. Heitum sykurleginum hellt út í smátt og smátt og þeytt á meðan. Best er að hella milli skálarbarms og þeytara, því ef hellt er beint á þeytarana geta komið slettur. Þeytt áfram smástund og síðan er linu smjörinu hrært gætilega saman við ásamt kakóinu.
  6. Kremið sett með matskeið á kökurnar (botninn) og kælt vel. Súkkulaðið brætt í vatnsbaði og síðan smurt yfir kremið; best er að vinna aðeins með nokkrar kökur í einu og geyma hinar í kæli á meðan. Kökurnar þarf að geyma í kulda, helst í frysti

Tags: , , , , , , , ,

No comments yet.

Leave a Reply

UA-31544739-1