Það hlaut að koma að því að ég myndi gera eina ofur stelpulega köku
Fyrr í vikunni gerði ég hrikalega krúttlega prinsessutertu sem var í raun einfaldari en margir gætu haldið.
Ég notaði djöflatertuuppskriftina hans afa sem mér finnst einstaklega bragðgóð og ekki flókin í vinnslu. Svo notaði ég heimatilbúinn sykurmassa, sem ég litaði bleikann með Holiday Red frá AmeriColors, til að hylja kökuna en kórónan og tölustafurinn voru gerð úr gum paste svo þau myndu haldast betur en slaufan og borðinn voru úr sykurmassa. Því miður fæst þessi litur ekki lengur vegna evrópureglugerðar en það er til rauður og bleikur frá Wilton sem hægt er að nota og það eru að koma nýjir litir hjá Allt í köku í júlí
Á eftirfarandi mynd sjást helstu tólin sem ég notaði (fyrir utan hið hefðbundna, þá á ég við kökukefli, sléttara og þess háttar sem ég nota til að fletja út sykurmassann og setja yfir kökuna).

Ég byrjaði á að baka eina og hálfa uppskrift af djöflatertu í ca 18 cm hringformi. Hægt er að baka allt í einu eða sitthvoru lagi, fer eftir því hvað hverjum og einum hentar. Einnig gerði ca 3/4 af sykurmassauppskrift.
Þegar kakan er tilbúin og búin að kólna er súkkulaðismjörkremið sett á milli botnanna og utanum og sléttað vel með kökuspaða og/eða borðsköfu svo auðveldara sé að setja sykurmassann yfir kökuna. Svo er hægt að nota sléttara til að slétta massann þegar hann er kominn yfir kökuna. Því er gott að setja nóg af kremi (ekki of mikið og ekki of lítið, gæti tekið smá tíma að finna “gullna meðalveginn”).
Næsta skref var að gera bólstrunaráferðina. Ég notaði hjól með göddum, einskonar míní tannhjól úr tólasettinu sem ég á frá Wilton. Það er notað til að gera línur með litlum götum, ég hef einnig notað þetta þegar ég geri för á litla barnaskó (nánar um þá síðar). Ég gerði svo opinn þríhyrning í hvert skipti, þ.e.a.s. opinn að neðan og þegar þeir fara yfir hvern annan myndast tíglarnir eins og sést á myndinni.
Þegar því var lokið notaði ég einskonara kúluáhald, minni endann og þrýsti inn á öllum skilunum/endunum á munstrinu nema því neðsta því þar kemur borðinn yfir.
Borðann gerði ég með því að fletja út langa lengju af sykurmassa og skera hana með borða skeranum (ribbon cutter) mínum. Hann auðveldar að gera beina og jafna borða og hægt að hafa þá mis breiða og með mismunandi mynstri. Ég notaði sama skerann til að gera litlu slaufuna en slaufan er í raun bara tveir bútar sem er skellt saman og skilin falin með smá bút yfir.
Tölustafurinn var einnig gerður úr gum paste og var þetta ein lengja með aðeins mjórri endum sem var mótuð handfrjálst. Ég þurfti að sjálfsögðu að leyfa stafnum og slaufunni að stífna yfir nótt á svampi svo þau myndu halda forminu.

Síðasta sem ég gerði var tvílita kórónan. Mörg ykkar viljið eflaust vita hvernig hún var gerð og mun ég skella inn lítilli færslu um hvernig megi gera eina á tiltölulega fljótlegan og einfaldan hátt. Hér sést þó mynd af helstu áhöldunum (fyrir utan lítið plastkefli sem ég nota til að fletja út massann).

Í stuttu máli flatti ég út einn bút af bleiku gum paste og einn bút af hvítu, skar fyrst í bleika með hjarta, þ.e.a.s. neðri hluta af stóru hjartaskera móti. Þannig fékk ég toppana þrjá. Notaði svo lítið hjartamót til að skera út hjörtun inn í. Því næst lagði ég bleika yfir hvíta og skar aðeins ofar af hvíta svo það sæist betur en skar beint ofan í hjörtun af bleika svo þau pössuðu saman. Því næst vafði ég þessu utan um glas sem ég hafði sett matarfilmu yfir og leyfði að standa á svampi í nokkrar klukkustundir. Að sjálfsögðu er ómögulegt að gera svona með því einu að lesa svona texta en örvæntið ekki, mun setja inn ítarlegri leiðbeiningar um hvernig þið getið gert ykkar eigin kórónu!

Til að fá glansandi áferðina á tölustafinn og alla kökuna notaði ég air brush kittið sem ég á. Notaði Pearl Sheen og Pink Sheen.

Það er að sjálfsögðu til mun auðveldari leið og hún er að kaupa perlusprey í brúsa. Það er hrikalega flott og gefur kökunni einstaklega flottan gljáa og gerir hana enn prinsessulegri.
Þessi kaka var svo toppuð með lítilli styttu af Öskubusku (Cinderella) en það er uppáhalds prinsessa afmælisbarnsins. Svona leit svo kakan út þegar að styttan var komin á.









Ó, þú brjálaði snillingur.
Þetta er algjört æði hjá þér
Knús á þig!