Heimagerður Hindberjaís

Eftir hátíðarnar átti ég nokkuð eftir af rjóma og vissi ég ekki alveg hvað ég ætti að gera við hann. Datt mér þá í hug að prufa að gera ís úr hindberjum sem ég átti í frosti. Ég veit að þetta er ekki beint kaka eða kökuskraut en ég gæti trúað að þessi ís væri góður í ístertu og svipað góðgæti;)

Þeir sem hafa prufað ísgerð vita að hann getur verið afar einfaldur í vinnslu en á það stundum að kristallast ef hann er lengi að frjósa eða ef ekki er hrært í honum inn á milli. Þessi virtist þurfa hvorugt enda var hann borðaður daginn eftir að hann var gerður ;)

Uppskriftina er að finna hér.

Það er ágætt að taka til öll hráefnin sem á að nota svo ekkert gleymist ;) Hérna sést allt nema vanilludroparnir og flórsykurinn. Hindberjaöskjuna fékk ég í Kosti.

Setjið hindberin í lítinn pott.

Bætið svo hluta af flórsykrinum við.

Hitið við vægan hita og hrærið saman.

Þegar öll blandan hefur bráðnað, leyfi þá blöndunni að krauma í um 7-8 mínútur. Takið af hellunni og leyfið að kólna í pottinum.

Meðan blandan kólnar er hægt að huga að því að þeyta eggjarauðurnar og rjómann. Þeytið eggjarauður og flórsykur vel saman þangað til blandan er orðin létt og ljós.

Þegar rjóminn hefur verið þeyttur með vanilludropunum, blandið þá eggjarauðunum varlega saman við og að lokum hindberjablöndunni.

Setjið blönduna svo í ílát, ég notaði svona “risa” blóm frá Tupperware en ég var búin að geyma það aðeins í frystinum áður en ég setti ísinn í það.

Þegar ísinn er borinn fram er hægt að skreyta hann að vild, t.d. með ferskum hindberjum, súkkulaði o.s.frv. en ég lét nægja að setja nokkur hindber inn í miðjuna.

Uppskrift af Hindberjaís (breytt úr bókinni Við Matreiðum eftir Önnu Gísladóttur)

  • 4 eggjarauður
  • 500 ml rjómi
  • 2-4 tsk vanilludropar
  • 4-6 msk flórsykur (þeyttur með eggjarauðunum)
  • ca 200 gr frosin hindber
  • ca 100 gr flórsykur (soðinn með hindberjunum)

Leiðbeiningar:

  1. Setjið hindber og flórsykur í pott og bræðið, sjóðið svo í um 7-8 mínútur og leyfið að kólna.
  2. Þeytið eggjarauður með flórsykri meðan blandan kólnar.
  3. Þeytið svo rjóma og vanilludropa saman.
  4. Blandið eggjarauðunum rólega saman við þeytta rjómann.
  5. Bætið hindberjablöndunni við í lokin og frystið.

Ef þið viljið hafa ísinn sætari þá getið þið bætt við aðeins meir af flórsykri.
Verði ykkur að góðu!

Tags: , , , , , , , ,

2 Responses to “Heimagerður Hindberjaís”

  1. María Hafsteinsdóttir
    13/01/2012 at 8:42 PM #

    mmmm…væri til í að prófa þennan ;)

Trackbacks/Pingbacks

  1. PakkaKaka | Kökudagbókin - 18/02/2012

    [...] aðeins eggjahvíturnar þá getur verið gott að geyma eggjarauðurnar í krukku og nota í ísgerð, súkkulaðikrem eða eitthvað annað [...]

Leave a Reply

UA-31544739-1