Fermingartertur

Það er orðið ansi langt síðan ég skrifaði síðast en ég hef ekki setið auðum höndum. Fermingartíminn hefur náð hámarki og því orðið aðeins rólegra hjá mér. Langar mig því til að deila með ykkur nokkrum myndum af tertunum sem ég hef verið að gera fyrir vini og vandamenn :)

Fyrsta tertan í ár var fyrir systurdóttur mína og fékk ég skemmtilega áskorun!

Biblía

Þetta var sannkölluð Biblíu terta. Ég nýtti mér ýmsa “tækni” við að gera þessa. Talnabandið var gert með tvinna og gum paste kúlum. Kakan var þakin með hvítum SatinIce sykurmassa en textinn var prentaður á marsipan pappír hjá Allt í köku og svo var allt saman air brushað með brúnum lit til að ná gamla og notaða útlitinu á tertunni. Svo ég komi því að, þá mæli ég eindregið með að nýta sér þá þjónustu að geta prentað nánast hvað sem er á svona marsípan pappír. Ég skannaði inn opnu úr nýja testamenntinu, kom með þetta á USB til þeirra og þetta var prentað á staðnum! Bandið í miðjunni var einnig air brushað en með gylltum lit þar sem það var auðveldara en að fara pensla gyllinguna. Auðvitað er ekkert mál að nota sprey í brúsa eða pensil, allt eftir því hvað hentar hverju sinni. Læt hér fylgja með aðra mynd af þessari. Fyrir þá forvitnu þá var þetta Toblerone terta inn í og var hún þakin með rjóma sem ég blandaði smá fromage við til að halda honum stífum. Fyrir þá sem eiga ekki fromage í duftformi, þá hef ég heyrt að royal búðingur virki vel og gervirjómi. Ég hef þó ekki prufað það sjálf.

Biblíukaka

Næsta áskorun var fermingarterta með ballet þema (uppskrift). Ég vissi ekki alveg hvernig ég ætti að tækla hana en eftir mikla “rannsóknarvinnu” á netinu fann ég út hvernig ég vildi hafa balletskóna. Þeir urðu reyndar aðeins stærri en ég átti von á og vóg hver um sig um 200 gr. Ég byrjaði með heilt stykki af gum paste sem ég mótaði svo í höndunum. Fyrsta skrefið var að gera bútinn ílangan og sléttann, nota svo þumalinn til að þrýsta niður og gera opið í skóinn. Best er að gera þetta aðeins fyrirfram svo skórnir fái tíma til að stífna upp. Það er að sjálfsögðu hægt að hafa þá minni/þynnri og léttari, held að æfingin skapi meistarann í þessum efnum. Þemað var bleikrautt með hjörtum og fiðrildum ásamt ballett fermingarbarnsins.  Skórnir og stafirnir voru air brushaðir með bleikum sheen lit en hjörtun og fiðrildin voru stungin út með mótum.

Hérna sést annar ballettskórinn aðeins betur.

Eitt af því skemmtilegasta við að gera tertur er hversu fjölbreyttar þær geta verið. Það eru fáir sem vilja alveg eins kökur og reyni ég að gera mitt besta til að uppfylla óskir. Skólasystir mín var einnig að ferma þetta árið og var þemað fjólublátt og svart. Því var farið aðeins óhefðbundnari leið í fermingartertunni þeirra. Tertan var tvískipt, súkkulaðiterta að ofan og jarðaberjadöðluterta að neðan en alveg eins skreyttar. Þannig höfðaði tertan til flestra gesta. Blómin voru gerð úr svörtu gum paste en ég notaði Black extra matarlit en hann er einstaklega sterkur og góður og þarf því mun minna af honum en öðrum svörtum matarlitum sem ég hef prufað hingað til. Ég notaði svo allskonar blómamót sem ég á úr Wilton settinu. Ég notaði svo kúluáhald til að þrýsta þeim niður á svamp og fá þannig kúpt blóm, setti svo silfurperlur frá Dr. Oetker í miðjuna á þeim. Rósirnar gerði ég einnig með nýja uppáhálds rósamótinu mínu :) Tertan var svo öll air brush-uð með fjólubláum og var markmiðið að hafa þetta svona “faded” þar sem dekst efst og svo lítið sem ekkert neðst. Ef þið eruð að spá í hvítu flekkunum þá getur þetta komið fyrir ef það er enn smá af kartöflumjöl á massanum eftir að hann var flattur út. Svo virðist sem kartöflumjöl og air brush vinni ekki alltaf saman.

Hér sést efri tertan aðeins betur. Fyrir forvitna þá fékk ég diskinn og stoðirnar í Húsasmiðjunni á sínum tíma en ég hef ekki séð þá þar lengur hinsvegar sá ég að Allt í köku er með svona glæra og stoðir í mismunandi stærðum :)

Nú er komið að stærstu kökunni sem ég hef gert hingað til! Þessi var hvorki meira né minna en 100 manna og svakalega súkkulaðibomba! (uppskrift) Ég á svo frábæra bók með góðum brúðartertu uppskriftum sem er sérstaklega hannaðar til að vera háar og til að stafla í hæðir. Þessi var þrjár hæðir og þurfti því viðeigandi “burðarvirki” inn í hana. Milli neðstu og miðju hæðar voru 9 stoðir og milli efstu og miðju voru fjórar stoðir. Undir hverri tertu var svo þunnur pappaplatti svo auðvelt væri að skera hverja hæð fyrir sig og færa sig þannig af efstu og niður. Annars var kakan í sjálfu sér ekki mikið flókin hvað skreytinguna varðaði. Silfurborðann fékk ég hjá Litur og föndur á Smiðjuveginum en svarta satínborðann fékk ég hjá Garnbúðinni. Ég var svolítið sein að athuga borðastöðuna hjá mér og hringdi því í hana á síðustu stundu (degi fyrir afhendingu/Skírdag) og fékk þetta afhent hjá henni um leið! Mæli því eindregið með að þið skoðið úrvalið hjá henni en þetta eru góðir borðar og á góðum kjörum! Blómin voru lifandi, munið að setja þau ekki of snemma á svo þau séu ekki farin að dofna þegar kemur að fermingarveislunni ;) Flúrið á köntunum gerði ég með svörtu súkkulaðikremi og stút #3.

Bleik fermingarterta

Hér er svo önnur með fermingarstyttunni á. Frænka mín lét gera svona töff styttu úr leir og vildi svo óheppilega til að hún passaði ekki alveg á kransakökuna og var því tekið á það ráð að skella henni á fermingartertuna :) Kom bara skemmtilega út, líka gaman að sjá að styttan og fermingarbarnið eru í stíl (gert með vilja að sjálfsögðu).

Ég er nú ekki vön að setja inn myndir af fólki með kökunum en ég verð hreinlega að gera undantekningu þar sem mér fannst þessi vera svo skemmtileg. Kökukúlurnar gerði ég einnig en þær voru gerðar úr afgangskremi og afskurðinum af kökunni. Þær voru hjúpaðar með bleiku hjúpsúkkulaði.

Fermingarbarn

Þessi færsla er nú orðin aðeins lengri en ég ætlaði mér. Hér kemur hinsvegar sú síðasta í þessari færslu. Gamall vinnufélagi minn var að ferma frumburðinn sinn síðustu helgi og vildi daman fá tveggja hæða tertu sem væri hvít að lit en þakin allskonar skærum blómum! Ég tók því fram alla electric litina mína og aðra bjarta og flotta og fór að lita litla búta af sykurmassa (notaði ekki gum paste í þetta skiptið) og fór svo að stinga út allskonar blóm með hinum og þessum mótum. Ég notaði hluta af Wilton blómasettinu og kúluáhald og sólblómasett. Ég nýtti mér hinsvegar blómamynsturgræju til að fá skemmtilegri áferð á sum blómin. Mér fannst þetta vera mjög björt og sumarleg kaka og mun einfaldara í gerð en margir gætu haldið. Blómin er hægt að gera með góðum fyrirvara, bara muna gera nóg ef einhver brotna. Svo er að baka kökuna, setja hana saman, massann yfir og stilla blómunum. Ég veit þetta er ekki alveg jafn einfalt og ég læt það hljóma en samt auðveldara en marga grunar :) Þessi þurfti einnig stoðir til að tryggja að hún myndi ekki falla saman.

Hér er svo smá nærmynd af toppnum. Þið takið kannski eftir riffluðu miðjunni á sumum blómunum, ég notaði ráð sem mér var bent á fyrir nokkur og það er að þrýsta smá kúlu á sigti.

Ég vona að þessi færsla hafi ekki verið of löng fyrir ykkur og þið getið nýtt ykkur einhverjar hugmyndir eða ráð sem detta hér inn á milli. Því miður vantar mig mynd af einni fermingartertunni sem ég gerði en hún var í raun þrjár kókostertur skreyttar með amerískum kókos úr Kosti sem er mun stærri og sætari en þessi sem hefur fengist hér heima. Þær voru svo aðeins skreyttar með 2-3 liljum og kom rosalega flott og stílhreint út.

Tags: , , , , , , , , , , ,

Subscribe

á eftirfarandi miðlum

3 Responses to “Fermingartertur”

  1. Eva María Hallgrímsdóttir
    23/04/2012 at 9:13 PM #

    Æðislegar myndir, er einmitt að fara gera eina fermingatertu og gaman að sjá hugmyndir hjá þér. Ein spurning varðandi Talía Fönn fermingartertuna, gerðir þú munstrið á endunum bara fríhendis? Mér finnst það æðislegt, kemur ekkert smá vel út og já hvaða lit notaðir þú á sykurmassann? Og já ein spurning í viðbót, hvað heldur þú að þú hafir notað mikið sykurmassa á þá köku?

  2. 23/04/2012 at 9:31 PM #

    Takk Eva María!

    Já, ég gerði munstrið fríhendis, ég reyndi fyrst að stinga það út með nál en það kom miklu betur út að gera fríhendis. Betra að hafa stútinn aðeins mjórri en stærri annars getur þetta orðið pínu klesst.

    Ég blandaði saman Electric pink og Holiday Red úr Americolor línunni. Held samt að þú getir blandað öðrum týpum t.d. poppy red og einhverjum björtum bleikum eins og cherry/pink eða claret bleikur, fer eftir hvaða bleika tón þú vilt ná. Það fór um 1,5-1,75 kg af sykurmassa yfir þessa.

  3. 24/04/2012 at 1:07 PM #

    Þú ert sannkölluð listakona þegar kemur að kökuskreytingum! Æðislegar kökur hjá þér!

Leave a Reply

UA-31544739-1