Archive | Uppskriftir RSS feed for this section

Pekanhnetu muffins með karamellusósu

Í síðustu færslu sagði ég ykkur frá köku í síðasta föstudagskaffi en þar minntist ég ekki á að ég gerði einnig þessar Pekanhnetu muffins með karamellusósu Uppskrift af Pekanhnetumuffins 125 gr smjör, mjúkt 125 gr púðursykur 2 stk egg 150 gr hveiti 1 tsk lyftiduft 1/4 tsk matarsódi smá salt 1 tsk vanilludropar (má sleppa) [...]

Continue Reading

Sítrónukókos kaka

Undanfarnar vikur hef ég verið með sítrónu æði ef svo má kalla og set sítrónur, sótrónubörk eða sítrónusafa í hina og þessa rétti (ekki bara kökur og eftirrétti). Ég gerði fyrstu sítrónukókos kökuna fyrir um tveimur vikum en hún var ekki alveg nógu einföld í vinnslu og safarík þannig að leitin hélt áfram. Ég fann [...]

Continue Reading

Vatnsdeigsbollur

Nú líður að bolludeginum og í tilefni þess ákvað ég að gera nokkrar bollur fyrir okkur skötuhjúin og þá sem áttu leið til okkar. Ég hef eina uppskrift sem hefur ekki klikkað hingað til og er mjög einföld. Bollurnar er svo hægt að fylla með hverju sem er, t.d. sultu og rjóma, karamellubúðing og rjóma [...]

Continue Reading

Pakkakaka

Mig hefur langað til að gera pakkaköku í þó nokkurn tíma og um daginn gafst loks tækifæri til. Ég ákvað einnig að prufa uppskrift af hvítum botni sem hefur verið afar vinsæll en nefnist White Cake eða Super Moist White Cake á ensku. Ég vafraði í dágóða stund um netið til að fá upplýsingar um [...]

Continue Reading

Heimagerður Hindberjaís

Eftir hátíðarnar átti ég nokkuð eftir af rjóma og vissi ég ekki alveg hvað ég ætti að gera við hann. Datt mér þá í hug að prufa að gera ís úr hindberjum sem ég átti í frosti. Ég veit að þetta er ekki beint kaka eða kökuskraut en ég gæti trúað að þessi ís væri [...]

Continue Reading

Sörur – uppskrift og aðferð

Ég held að Sörur séu eitt vinsælasta heimagerða konfektið yfir hátíðarnar hér á landi. Ég gerði eina heiðarlega tilraun til sörugerðar fyrir fáeinum árum en sú tilraun endaði ansi illa og fór svo að ég reyndi ekki einusinni að setja kremið á kökurnar. Í ár var sagan hinsvegar önnur, eldri systir mín vildi endilega fá [...]

Continue Reading

Sykurklakar

Fyrir þó nokkru sagði ég ykkur frá köku sem ég gerði og voru á henni sykurflöskur og sykurklakar. Ég lofaði að setja inn uppskriftir og leiðbeiningar að slíku kökuskrauti og hérna koma smá upplýsingar um sykurklakana. Þá er í raun hægt að gera á nokkra vegu og fá mismunandi gerðir (tæra) af klökum. Uppskriftin sem [...]

Continue Reading

Súkkulaði möndlu maregns baka

Loksins loksins er komið að færslu með einhverjum gómsætum eftirrétt! Eins og glöggir fylgjendur tóku kannski eftir var ég í fríi á Filippseyjum en er komin til baka og búin að baka ýmislegt frá því að ég kom heim. Er þó ekki búin að reyna neina Fileypska eftirrétti en hef eldað “Thai Fried Rice” ansi [...]

Continue Reading

Skrautlegur maregns, einföld rúlluterta og tilraun

Um helgina fékk ég loks tækifæri til að prufa tilraunaköku sem ég hafði gert helgina áður. Þó ekki “sama” kakan en sama uppskriftin Ég bauð örfáum nánum ættingjum í heimsókn síðasta sunnudag og að sjálfsögðu varð ég að bjóða upp á ýmiskonar kræsingar. Góð maregnskaka slær ávallt í gegn hjá minni fjölskyldu og skellti ég [...]

Continue Reading

Ýmis verkefni og næsti hittingur

Kæru lesendur, Það hefur verið mikið að gera hjá mér að undanförnu og síðan aðeins setið á hakanum sem mér þykir einstaklega leiðinlegt. Það hefur þó ekki vantað verkefnin það er víst. Nýjasta verkefnið var fyrir Arca Design en það er verslun sem selur allskonar vörur, þar á meðal GEÐVEIKA kökudiska, úr plexígleri. Ég er nú [...]

Continue Reading