Archive | Leiðbeiningar RSS feed for this section

Vatnsdeigsbollur

Nú líður að bolludeginum og í tilefni þess ákvað ég að gera nokkrar bollur fyrir okkur skötuhjúin og þá sem áttu leið til okkar. Ég hef eina uppskrift sem hefur ekki klikkað hingað til og er mjög einföld. Bollurnar er svo hægt að fylla með hverju sem er, t.d. sultu og rjóma, karamellubúðing og rjóma [...]

Continue Reading

Pakkakaka

Mig hefur langað til að gera pakkaköku í þó nokkurn tíma og um daginn gafst loks tækifæri til. Ég ákvað einnig að prufa uppskrift af hvítum botni sem hefur verið afar vinsæll en nefnist White Cake eða Super Moist White Cake á ensku. Ég vafraði í dágóða stund um netið til að fá upplýsingar um [...]

Continue Reading

Heimagerður Hindberjaís

Eftir hátíðarnar átti ég nokkuð eftir af rjóma og vissi ég ekki alveg hvað ég ætti að gera við hann. Datt mér þá í hug að prufa að gera ís úr hindberjum sem ég átti í frosti. Ég veit að þetta er ekki beint kaka eða kökuskraut en ég gæti trúað að þessi ís væri [...]

Continue Reading

Fígúrugerð – Lamb

Í ágúst síðastliðinn gerði ég afar krúttlega sveitaköku fyrir eins árs afmæli litla frænda míns. Á þeirri köku voru að finna ýmsar fígúrur og þar á meðal litla kind sem margir hafa verið afar hrifnir af. Hér koma loks stuttar leiðbeiningar um hvernig sé hægt að gera svona fígúru. Hvort sem hún eigi að vera [...]

Continue Reading

Duff bjórflöskukaka

Hér kemur loks lýsing á Duff bjórflösku kökunni sem ég hef verið að minnast á í síðustu tveimur færslum um sykurklaka og sykurflöskur. Kakan sjálf var hin hefðbundna djöflatertukaka með súkkulaðismjörkremi sem ég geri þegar ég þarf trausta súkkulaðiköku. Fyrsta verkið er að gera flöskurnar sjálfar. Það ferli tekur smá tíma þegar einungis eitt form [...]

Continue Reading

Bjór sykurflöskur

Nú er síðan komin í nýjan búning og vona ég að ykkur líki vel við. Ef þið rekist á villur einhversstaðar eða eitthvað sem virkar ekki sem skyldi, þá megið þið gjarnan láta mig vita, annaðhvort með því að skrifa við færsluna eða senda mér línu. Síðast skrifaði ég lítillega um sykurklaka og lét fylgja [...]

Continue Reading

Súkkulaði möndlu maregns baka

Loksins loksins er komið að færslu með einhverjum gómsætum eftirrétt! Eins og glöggir fylgjendur tóku kannski eftir var ég í fríi á Filippseyjum en er komin til baka og búin að baka ýmislegt frá því að ég kom heim. Er þó ekki búin að reyna neina Fileypska eftirrétti en hef eldað “Thai Fried Rice” ansi [...]

Continue Reading

Air brush afmæliskaka og stenslar

Mig langar að byrja á að þakka öllum þeim sem komu á kökuhittinginn hjá Allt í köku á fimmtudaginn. Þegar mest var voru um 40 manns sem var alveg meiriháttar! Ég vona að þið hafið haft bæði gagn og gaman af og flestum eða öllum spurningum svarað. Það verða pottþétt fleiri hittingar  og væri gaman [...]

Continue Reading

40 ára afmælisterta með golf þema

Í gær fékkst ég við áhugavert kökuverkefni en maður vinkonu minnar átti fertugsafmæli og langaði hana til að koma honum aðeins á óvart með “öðruvísi” afmælistertu. Fyrir valinu varð golf þema en helsta krafan var að kakan hefði húmor Svona varð annars útkoman: Ég gleymdi mér aðeins í kökugerðinni þannig að ég náði ekki myndum [...]

Continue Reading

Heimagerðir sykurpúðar

Ég fékk frábæra áskorun á síðunni í vikunni frá Brynju Stefánsdóttur sem ég gat ekki annað en tekið. Sérstaklega í ljósi þess að ég átti öll hráefnin til. Áskorunin var: Heimagerðir sykurpúðar og hér sést lokaafurðin. Hún benti mér á uppskrift af About.com en sú uppskrift krafðist þess að nota korn síróp (corn syrup) það er [...]

Continue Reading