Archive | Fullorðins RSS feed for this section

Duff bjórflöskukaka

Hér kemur loks lýsing á Duff bjórflösku kökunni sem ég hef verið að minnast á í síðustu tveimur færslum um sykurklaka og sykurflöskur. Kakan sjálf var hin hefðbundna djöflatertukaka með súkkulaðismjörkremi sem ég geri þegar ég þarf trausta súkkulaðiköku. Fyrsta verkið er að gera flöskurnar sjálfar. Það ferli tekur smá tíma þegar einungis eitt form [...]

Continue Reading

Brúðarterta með svart/hvítu þema

Ég vil byrja á að óska nýgiftu brúðhjónunum, sem fengu kökuna, innilega til hamingju með daginn! Það var virkilega gaman að fá að gera daginn örlítið eftirminnilegri með tertunni Hér má sjá tertuna fullkláraða og á eftir kemur stutt lýsing á ferlinu og uppskrift að botnunum. Fyrsta skrefið er að sjálfsögðu að baka botnana. Ég [...]

Continue Reading

Sykurmassi og Gum paste

Það má með sanni segja að sykurmassa “æði” eigi sér stað um þessar mundir hér á landi. Erlendis er þetta kallað fondant og stundum sugar paste. Það er einnig til annað efni sem heitir gum paste og hegðar sér svipað og sykurmassi en er frekar ætlað til að gera kökuskraut því það harðnar mun fyrr [...]

Continue Reading

Rósarterta með lóðréttri lagskiptingu

Þessi kaka var tileinkuð mágkonu minni sem er einstaklega dugleg við að skoða hverskyns matar- og kökublogg og hefur gaman af tilraunastarfsemi. Þar sem hún hefur ekki haft tíma til að prufa þessa sjálf stóðst ég ekki freistinguna. Hugmyndin er fengin frá bloggaranum i am baker sem sýndi hvernig hægt væri að gera köku með lóðréttri [...]

Continue Reading

Afmælis muffins

Afmælisdagur í dag! Systir mín átti afmæli og því upplagt að gera góðan eftirrétt þar sem okkur var boðið í mat til múttu ásamt litlu frænku mínum. Mér fannst upplagt að gera tvennskonar muffins og ákvað að prufa tvær nýjar uppskriftir úr bókinni 200 cupcakes eftir Joanna Farrow. Fjölbreytileikinn er mikill og hægt að fá margar [...]

Continue Reading