Archive | Kökur RSS feed for this section

Fermingartertur

Það er orðið ansi langt síðan ég skrifaði síðast en ég hef ekki setið auðum höndum. Fermingartíminn hefur náð hámarki og því orðið aðeins rólegra hjá mér. Langar mig því til að deila með ykkur nokkrum myndum af tertunum sem ég hef verið að gera fyrir vini og vandamenn Fyrsta tertan í ár var fyrir [...]

Continue Reading

Sítrónukókos kaka

Undanfarnar vikur hef ég verið með sítrónu æði ef svo má kalla og set sítrónur, sótrónubörk eða sítrónusafa í hina og þessa rétti (ekki bara kökur og eftirrétti). Ég gerði fyrstu sítrónukókos kökuna fyrir um tveimur vikum en hún var ekki alveg nógu einföld í vinnslu og safarík þannig að leitin hélt áfram. Ég fann [...]

Continue Reading

Hello Kitty, smjörkremskaka

Í síðustu viku gerði ég eina frekar krúttlega Hello Kittý köku en ég hef gert nokkrar úr sprautuðu smjörkremi eins og þessa en aldrei gefið mér tíma til að taka myndir af því hvernig ég fer að því. Þetta er í raunar sára einfalt og það sem er tímafrekast er að gera mismunandi liti af [...]

Continue Reading

Duff bjórflöskukaka

Hér kemur loks lýsing á Duff bjórflösku kökunni sem ég hef verið að minnast á í síðustu tveimur færslum um sykurklaka og sykurflöskur. Kakan sjálf var hin hefðbundna djöflatertukaka með súkkulaðismjörkremi sem ég geri þegar ég þarf trausta súkkulaðiköku. Fyrsta verkið er að gera flöskurnar sjálfar. Það ferli tekur smá tíma þegar einungis eitt form [...]

Continue Reading

Air brush afmæliskaka og stenslar

Mig langar að byrja á að þakka öllum þeim sem komu á kökuhittinginn hjá Allt í köku á fimmtudaginn. Þegar mest var voru um 40 manns sem var alveg meiriháttar! Ég vona að þið hafið haft bæði gagn og gaman af og flestum eða öllum spurningum svarað. Það verða pottþétt fleiri hittingar  og væri gaman [...]

Continue Reading

40 ára afmælisterta með golf þema

Í gær fékkst ég við áhugavert kökuverkefni en maður vinkonu minnar átti fertugsafmæli og langaði hana til að koma honum aðeins á óvart með “öðruvísi” afmælistertu. Fyrir valinu varð golf þema en helsta krafan var að kakan hefði húmor Svona varð annars útkoman: Ég gleymdi mér aðeins í kökugerðinni þannig að ég náði ekki myndum [...]

Continue Reading

Skrautlegur maregns, einföld rúlluterta og tilraun

Um helgina fékk ég loks tækifæri til að prufa tilraunaköku sem ég hafði gert helgina áður. Þó ekki “sama” kakan en sama uppskriftin Ég bauð örfáum nánum ættingjum í heimsókn síðasta sunnudag og að sjálfsögðu varð ég að bjóða upp á ýmiskonar kræsingar. Góð maregnskaka slær ávallt í gegn hjá minni fjölskyldu og skellti ég [...]

Continue Reading

Ýmis verkefni og næsti hittingur

Kæru lesendur, Það hefur verið mikið að gera hjá mér að undanförnu og síðan aðeins setið á hakanum sem mér þykir einstaklega leiðinlegt. Það hefur þó ekki vantað verkefnin það er víst. Nýjasta verkefnið var fyrir Arca Design en það er verslun sem selur allskonar vörur, þar á meðal GEÐVEIKA kökudiska, úr plexígleri. Ég er nú [...]

Continue Reading

Brúðarterta með svart/hvítu þema

Ég vil byrja á að óska nýgiftu brúðhjónunum, sem fengu kökuna, innilega til hamingju með daginn! Það var virkilega gaman að fá að gera daginn örlítið eftirminnilegri með tertunni Hér má sjá tertuna fullkláraða og á eftir kemur stutt lýsing á ferlinu og uppskrift að botnunum. Fyrsta skrefið er að sjálfsögðu að baka botnana. Ég [...]

Continue Reading

Krókur (úr Cars)

Það er víst nóg af afmælum í fjölskyldunni þessa dagana og varð Mater, öðru nafni Krókur fyrir valinu að þessu sinni. Hérna sést lokaafurðin: Verð nú að sýna eina framan á áður en ég held lengra. Ég bakaði tvöfalda uppskrift í tveimur kassalaga formum (einnig hægt að baka í skúffu og skera). Ég gerði svo [...]

Continue Reading