Air brush afmæliskaka og stenslar

Mig langar að byrja á að þakka öllum þeim sem komu á kökuhittinginn hjá Allt í köku á fimmtudaginn. Þegar mest var voru um 40 manns sem var alveg meiriháttar! Ég vona að þið hafið haft bæði gagn og gaman af og flestum eða öllum spurningum svarað. Það verða pottþétt fleiri hittingar  og væri gaman að vita hvað þið mynduð vilja sjá eða deila með öðrum næst?
Það eru svo margir hæfileikaríkir kökuskreytarar og væri gaman ef fleiri gætu deilt með sér en sjálfsagt mál að deila meiri þekkingu með ykkur. Ef ég kann það ekki, kynni ég mér það og sýni ykkur eða reyni að fá einhverja manneskjum sem kann það og er betri en ég :-)

Snúum okkur hinsvegar að verkefni helgarinnar. Þannig er að litla frænka mín á afmæli í komandi viku en ákveðið var að halda afmælið hennar um helgina. Hún var ekki með neinar sér óskir þannig að mér datt í hug að hafa kökuna með einhverju sem hún dýrkar. Hún er mikill dýravinur og á fjölskyldan Bolabít sem henni þykir afar vænt um.  Þar sem ég var enn í hörku air brush stuði eftir kökuhittinginn á fimmtudaginn með öllum frábæru konunum ákvað ég að gera minn eigin stencil. Hérna sést lokaafurðin komin á veisluborðið.

Litla frænka var alsæl og fékk ég stórt og mikið knús fyrir :) Annars langar mig að segja ykkur stuttlega frá ferlinu við stenslagerðina. Ég byrjaði á að fara á Google og fletti upp leitarorðinu “bulldog stencil” og fékk þessa mynd af etsy.com.

Ég prentaði hana á A4 blað og byrjaði að skera út með stenslaskeranum og stenslamottunni minni. Hérna sést hluti af ferlinu en þarna er ég búin að skera út smá hluta.

Ég var að búin að gera kökuna og setja heimagerðan sykurmassa, úr JetPuffed sykurpúðum, og gera hana slétta og fína. Því næst lagði ég stensilinn yfir kökuna og byrjaði að spreyja með air brush. Ég var með lítið svigrúm á skrúfganginum til að minnka flæðið og var mjög nálægt. Litaði fyrst meðfram jöðrunum og svo lauslega inn í miðju í hverju gati ef svo má segja. Ég vona að þið skiljið hvað ég er að fara. Því miður hafði ég engan aðstoðarmann eða konu til að taka mynd eða video af þessu en reyni að gera það næst. Hér sést þó nærmynd af hundinum:

Markmiðið mitt var að hafa þetta ekki alveg þétt spreyjað til að gera þetta enn líflegra og ekki alveg jafn klippt og skorið. Ég byrjaði á brúna og litaði þá hluta sem áttu að vera brúnir, skolaði léttilega úr bollanum og setti smávegis af svörtum í fyrir nebbann/trýnið. Þegar myndin var komin langaði mig til að mynda einskonar sól utanum um hundinn. Byrjaði því á að spreyja gulan á jaðarinn, svo appelsínugulann léttilega yfir. Ég gerði heiðarlega tilraun til að gera sólargeisla niður með kökunni en ég var ekki nógu ánægð með þá. Hefði átt að nota skapalón en ég geri það næst. Ætla þó að sýna ykkur hvernig þetta leit út svo þið sjáið almennilega hvað ég á við.

Þar sem ég var of upptekin við að spreyja kökuna og enginn aðstoðarmaður til að taka myndir af mér hef ég ekki fleiri myndir af ferlinu. Því langar mig að deila einni mynd til viðbótar af kökunni. Vil taka fram að þessi ljósmynd er ekki eftir mig en fékk leyfi ljósmyndarans til að birta myndina hér.

Annars gæti orðið lítið um skrif næstu vikur vegna ferðalags en vonandi tekst mér að segja ykkur frá einhverju skemmtilegu og framandi í máli og myndum. :-)

Tags: , , ,

No comments yet.

Leave a Reply

UA-31544739-1