Afmælisterta með garðþema

Fyrir helgi gerði ég litla en skemmtilega afmælistertu í tilefni 50 ára afmælis. Ég lagði upp með að hafa býflugu þema þar sem afmælisbarnið hafði orð á því en varð að breyta aðeins og úr varð lítil og nett terta með grænmetisgarði :)

Garden cake by TheCakeDiary.com

Þetta er í sjálfu sér nokkuð einföld terta, mesti tíminn fer í að dúlla sér yfir grænmetinu en það vildi svo vel til að ég átti nóg af gumpaste tilbúið í öllum regnbogans litum þannig að þetta tók afar stuttan tíma. Svo ég tali nú ekki um hversu fá stykki ég gerði af hverju. Ég notaði nokkur tól úr Wilton settinu mínu til að gera nokkur smáatriði sem einkenndi grænmetið.

Garden cake by TheCakeDiary.com

Á myndinni sést einnig sprautustúturinn sem ég notaði til að gera grasið. Best er að hafa smjörkremið aðeins mýkra svo auðvelt sé að sprauta því gegnum þessi smáu göt. Ég hef lent í því að þurfa taka úr pokanum og hræra upp með smá vatni til að þynna kremið aðeins þegar verið að gera svona. Oftar en ekki eru OREO kexkökur notaðar til að gera “moldina” en þar sem þær voru ekki við höndina tók ég fram svart litaðan sykur frá CK og stráði í hólfin eftir að ég var búin að móta þau með því að sprauta kreminu.

Hérna kemur svo ein betri nærmynd af grænmetinu, sjáið vonandi eitthvað af smáatriðunum en ég notaði heila tannstöngla til að halda tómatplöntunum og sykurmassalím.

Garden cake by TheCakeDiary.com

Ég notaði sykurmassa til að gera grindverkið en hann skar ég niður fríhendis með pizzaskera.

Hér eru fleiri myndir af tertunni fyrir áhugasama :)

Tags: , , , ,

One Response to “Afmælisterta með garðþema”

  1. Dagný
    20/08/2012 at 12:19 PM #

    Æðisleg kaka hjá þér ! :)

Leave a Reply

UA-31544739-1