Um mig
Ég heiti Eva Rún, 27 ára og búsett í Reykjavík. Fyrir nokkrum árum komst ég að því að ég hafði einstaklega gaman af bakstri og matarskreytingum, þó einna helst kökubakstri og
skreytingum tengdu því. Ég reyni að fara mínar eigin leiðir þegar færi gefst en einnig fæ ég mikið af hugmyndum frá öðrum. Uppskriftirnar sem ég birti eru oft af ýmiskonar bloggsíðum, öðrum uppskriftasíðum eða upppskriftabókun. Stundum hef ég breytt þeim og gert þær að mínum eigin en ég reyni ávallt að geta hvaðan ég hef uppskriftirnar. Ég baka nánast hvernig kökur sem er, hefðbundnar, “gamaldags”, ekta rjómatertur og allt eftir því. Eftir að ég kynntist “fondant” eða sykurmassa hef ég verið mikið í þesskonar skreytingum þó smjörkremið ávallt vinsæl skreytingaraðferð hjá mér.
Það eru þó til ótal leiðir í kökuskreytingum, til að mynda með súkkulaði, sykri, gelatíni og lengi mætti telja. Ég hef prufað mig áfram í þeim efnum en mig langar til að verða færari í sykur- og súkkulaðiskreytingum og nýti hvert tækifæri sem gefst til þesskonar skreytinga.
Það sem ég kann hef ég lært gegnum bækur, Internetið (t.d. YouTube) eða gegnum eigið hugmyndaflug og tilraunir. Ég hef þó getað leitað til fjölskyldu og tengdamóður þegar mig vantar ráð með uppskriftir og því um líkt.
Markmiðið með þessari síðu er að deila með öðrum uppskriftum, lausnum og öðru sem viðkemur kökubakstri og skreytingum. Ástæðan er einfaldlega sú að margir spyrja mig hvernig ég fari að þessu og hvort þetta sé ekki mikið mál. Þrátt fyrir að mér finnist það er ekki þar með sagt að öðrum finnist það. Það er þó von mín að síðan hjálpi öðrum áhugasömum að fikra sig áfram og sjá hversu auðvelt þetta getur verið með réttri hvatningu og upplýsingum.
Ég er minn eigin ljósmyndari og legg ég mikinn metnað í að hafa skýrar og góðar myndir. Stökum sinnum er ég að segja frá því hvað aðrir gera og birti myndir því til stuðnings, þá tek ég fram hvaðan ég fæ myndirnar.
Ef þið hafið einhverjar spurningar er ykkur velkomið að senda mér tölvupóst en ég mun gera mitt besta til að svara þeim eins fljótt og ég get.




Þú ert ekkert smá metnaðarfull! Rosalega flottar kökur hjá þér!
Takk Nanna
Ég var einmitt að rekast á síðuna þína í dag og finnst hún mjög áhugaverð og á eftir að fylgjast vel með eldamennskunni hjá þér!
Svo flott hjá þér þú ert snillingur kv. Vilborg/Arca